top of page

Línur, flækjur og allskonar



Einkasýning Guðrúnar Gunnarsdóttur 2022-2023 http://listasafn.reykjanesbaer.is/linur-flaekjur-og-allskonar

 

Guðrún Gunnarsdóttir er frumkvöðull á sviði þráðlistar og gefur sýning hennar góða mynd af þróun listamannsins frá myndvefnaði á áttunda áratug síðustu aldar, til þrívíddarmynda sem einkenna myndlist hennar í dag.

 

Þráðlist eins og sú sem Guðrún ástundar er ótvírætt þrívíddarlist í klassískum skilningi, þótt listakonan gangi í berhögg við ýmsar siðvenjur sem fylgt hafa slíkri list frá örófi alda. Til að mynda hirðir hún ekki um að setja verk sín á stalla, og þar með bæði upphefja þau og staðsetja utan seilingar. Þess í stað fá þau að leika lausum hala í námunda við okkur, hanga ofan úr lofti, fikra sig ofur varlega upp og niður veggi, eða mynda smágerðar lífrænar einingar niður við fótskör. Og í stað þess að kalla á athygli, eins og stallsettir skúlptúrar óneitanlega gera, eru verk Guðrúnar gerð til að birtast okkur eins og fyrir tilviljun, jafnvel koma þægilega á óvart, ekki ósvipað og ljóðlínur með óvæntu niðurlagi.

 

Sýningarstjóri var Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur. Sýningin var styrkt af Myndlistarsjóði.




bottom of page